Caught in the act…

Það er óviðjafnalega spennandi að vera gripin að verki við að gera eitthvað dónalegt, eins og að klæða sig upp og binda sig við stól, meðal annara fata í níðþröngu satín-legu pilsi sem maður átt ekki en fer manni fáránlega vel, og með latex hettu á höfðinu. Það er enn betra þegar þú sérð mig er þú kemur heim, brosir kankvíslega og nýtir þér tækifærið til að misnota bundna stúlkuna. :-)

Unaðsleg þreyta.

Ég held að þessi annar í Hvítasunnu sé fullkominn afslöppunardagur.

Seinasta nótt var svo sjóðandi heit og geggjuð, morguninn og allt sem fylgdi á eftir, úff.

Það er eitthvað æðislegt við að horfa á konu breyta hreinlega um augnlit er hún nýtur sjálfrar sín og kemst nær hámarki.

Það er eitthvað svo æðislegt að hleypa algerlega að kvenlegu hliðinni á sér í návist manneskju sem dáist og hlúir að manni sama hvora hliðina hún sér og hvernig sem hlutirnir fara.

Það er eitthvað svo æðislegt að finna til algerrar slökunar í návist þessarar sömu manneskju þannig að við verðum eins og tveir munúðarfullir kettir liggjandi uppí rúmi.

Mjámjá.