Corset fetish.

Ef ekki værir fyrir bæði masókistann í mér og ákveðið blæti þá hefði ég farið úr korsettinu mun fyrr eða um leið og ég fór að finna aðeins til í mittinu og um rifbeinin. En sú tilfinning að vera í svona aðþrengdri flík, fallegri og heftandi, kvenlegri, yfirgnæfir allt annað.  Þetta eru hálfgerðar líkamsbindingar og sem bondage slut þá tek ég öllu slíku fegins hendi. 😛

Í gær klæddi ég mig upp að mestu, var bara heima og í herberginu mínu, renndi upp stígvélunum eftir að hafa farið í þröngan kjól, fyllt upp í brjóstahaldarann og rennt fingrum eftir sokkabuxunum.

Mér leið gríðarlega vel, ég var afslöppuð og sæl. 🙂

Og síðan 6 tímum seinna langaði mig lítið til að fara úr þessu öllu, sér í lagi korsettinu. En allt tekur enda um síðir og hin sjáanlega Linda endaði inni í skáp. En innra með var hún enn á vappi, ósátt við að fá ekki nema smá part af daglegu lífi til að blómstra.

Reyrt fast

Púff þessi jól eru að venju mikil átveisla, sem þýðir bara að korsettin munu þrengja vel að næst, sem er bara æði. 😛

En ég þarf samt að huga að línunum, finna einhvern meðalveg og halda mér þar, reyri korsettið vel og geri muellers æfingar hehe.

Ég vona að flutningurinn á blogginu mínu hafi ekki ruglað fólk. Ég vildi breyta til að skilja eftir bloggsíðu sem snérist áður fyrr um þræl í eigu einhvers. Þó ég hefði svo haldið áfram með nýtt líf og einblínt á Lindu sem frjálsa stúlku þá sat eitthvað eftir, eitthvað sem ég vildi losna við að fullu. Því skipti ég um farartæki…

Svo er þetta bloggkerfi líka mikið þægilegra.

Nýtt upphaf.

Hæhæ öll og velkomin á nýju bloggsíðuna. Hér byrja ég á núllpúnkti, lít ekki til baka og geng fram á veginn á mínum pinnahælum. 😛

Newer entries »